Risalerki
Risalerki | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Larix occidentalis Nutt. | ||||||||||||||
Útbreiðslusvæði Larix occidentalis
|
Risalerki er stórvaxnasta lerkitegundin. Það er einstofna tré með reglulega krónu og vex í fjöllum í norðvesturhluta Bandaríkjanna og í suðurhluta Bresku Kólumbíu. Það vex aðallega í Klettafjöllum en t.d. líka í Fossafjöllum. Það verður vanalega 30 til 55 metrar fullvaxið en getur náð rúmum 60 metrum.[1]
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Lítil reynsla er af því á Íslandi. Hugsanlega má finna megi kvæmi innan útbreiðslusvæðis risalerkis sem geta lifað og vaxið nægilega vel á Íslandi til að þau nýtist a.m.k. í trjárækt eða skógrækt.[2] Risalerki hefur svipaða aðlögun að veðurfari og evrópulerki, þ.e. vex yfirleitt of lengi fram eftir hausti, en er mun beinvaxnara þrátt fyrir það. Virðist það þó vera viðkvæmt fyrir bæði nála- og átusjúkdómum hérlendis, sem evrópulerki er ekki. [3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Western larch Geymt 26 mars 2016 í Wayback Machine USDA forest service. Skoðað 8. apríl, 2016.
- ↑ Hver er vöxtur risalerkis á Íslandi? Geymt 27 apríl 2016 í Wayback Machine Skógrækt ríkisins. Skoðað 8. apríl, 2016.
- ↑ Lerkitegundir Geymt 29 apríl 2016 í Wayback Machine Skógrækt ríkisins. Skoðað 8. apríl, 2016