Andarnefja
Nefjur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Samanburður á stærð andarnefju og manns
| ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Hyperoodon ampullatus (Forster, 1770) | ||||||||||||||||
Útbreiðslusvæði andarnefju í norðurhöfum
| ||||||||||||||||
Hyperoodon planifrons Flower, 1882 | ||||||||||||||||
Útbreiðslusvæði andarnefju í suðurhöfum
|
Andarnefja (fræðiheiti Hyperoodon ampullatus) er allstór tannhvalur, álíkastór og hrefna en mjög ólík henni. Hún er með mjótt trýni og hátt og kúpt enni. Trýnið minnir á andarnef og af því fær hún nafn sitt. Höfuðið er nokkuð aðgreint frá bolnum. Augun eru rétt aftan við munnvikin.
Tarfarnir eru um átta metrar á lengd og um 3600 kg að þyngd. Kýrnar eru um sjö metrar á lengd og vega um þrjú tonn. Karldýrið er með tvær tennur í neðri skolti en kvendýrið er tannlaust. Andarnefjan er grásvört á litin en ljósari á neðan en á bakinu. Þegar dýrin eldast verða sum þeirra ljós á litinn og höfuðið nærri hvítt. Bægslin eru rétt fyrir aftan höfuðið og eru heldur smá. Bakugginn er heldur aftarlega og er um 30 sm hár. Það er ekkert skarð á miðjum sporðinum og lyfta þær sjaldan sporðinum upp úr sjónum, en stundum stökkva þær. Blásturinn er lítill og sést heldur illa. Andarnefjan verður kynþroska um 9 - 12 ára. Fyrri hluta sumars eða á vorin er fengitími og er meðgöngutími kálfa um 12 mánuðir.
Andarnefjur lifa aðallega á smokkfiski en éta einnig fisk, sæbjúgu og krossfiska. Þær halda sig oftast fjarri landi. Þær eru mjög forvitnar og koma oft nærri skipum. Ef skipin gefa frá sér hvell hljóð kafa þær undir skipin til að kanna hvaðan hávaðinn kemur. Þær eru oft margar mínútur á yfirborði til að anda en kafa þess á milli niður á mikið dýpi. Aðeins búrhvalir geta kafað dýpra en þær. Þær sjást við Ísland á sumrin og eru þær þá aðallega fyrir vestan og norðan landið milli Íslands og Jan Mayen. Á veturna eru þær aðallega vestur og suðvestur af Spáni.
Heimildir
- Ásbjörn Björgvinsson og Helmut Lugmayr (2002). Hvalaskoðun við Ísland. Reykjavík: JPV Útgáfan.
- Stefán Aðalsteinsson (1987). Villtu spendýrin okkar. Reykjavík: Bjallan.
- Upplýsingaskilti um andarnefjur á Pollinum á Akureyri
- Sigurður Ægisson, Jón Ásgeir í Aðaldal, Jón Baldur Hlíðberg (1997). Íslenskir hvalir fyrr og nú. Forlagið.
Tenglar
Íslenskir tenglar
- Andarnefja er algeng hér við land; grein í Morgunblaðinu 1998
- Húsvíkingar í bardaga við hvali; frétt í Morgunblaðinu 1939
- Fólk sýni aðgát nálægt andarnefjum, 15.09.2008, frétt frá Akureyri
Erlendir tenglar
- Marine Bio: Northern Bottlenose Whale
- Marine Bio: Southern Bottlenose Whale
- 70South - information on the Bottlenose Whale
- Northern Bottlenose Whale
- BBC: Whale spotted in central London
- Whale & Dolphin Conservation Society (WDCS)