Fara í innihald

John Wilkins

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 6. mars 2013 kl. 23:39 eftir Addbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. mars 2013 kl. 23:39 eftir Addbot (spjall | framlög) (Bot: Flyt 16 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q381039)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
John Wilkins

John Wilkins (1614-1672), biskup í Chester, var breskur dulmálsfræðingur og stofnandi, fyrsti formaður og ritari Royal Society - bresku náttúruvísindasamtakanna. Hann skrifaði talsvert um vísindaleg efni, meðal annars umdeilda ritgerð um hvort líf gæti þrifist á tunglinu.

Hann er meðal ýmiss annars þekktur fyrir að hafa þróað algilt heimspekimál og Real Character stafrófið - atkvæðastafróf þar sem að tákn hvers atkvæðis lítur út eins og lögun tungu, vara og barka mannveru sem að gefur frá sér viðkomandi atkvæði. Einnig skrifaði hann mjög efnismikið rit um dulmálsfræði, þar sem hann safnaði saman og lýsti öllum helstu dulmálum hins þekkta heims.