1179
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1179 (MCLXXIX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Katla gaus og byggð eyddist á Mýrdalssandi.
- Staðamál fyrri hófust á Íslandi þegar Þorlákur helgi Þórhallsson hóf að krefjast forræðis yfir bændakirkjum.
- Ormur Jónsson gamli á Svínafelli gekk í klaustur en Sigurður Ormsson sonur hans varð höfðingi Svínfellinga.
Fædd
- Snorri Sturluson, íslenskur rithöfundur (d. 1241).
Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- Páskar - Loðvík 7. Frakkakonungur sendi Agnesi dóttur sína, átta ára gamla, til Konstantínópel til að giftast ríkisarfanum þar.
- 19. júní - Orrustan á Kálfskinni í nágrenni Niðaróss var háð. Þar féll Erlingur skakki fyrir mönnum Sverris Sigurðssonar.
- 1. nóvember - Filippus Ágúst, krónprins Frakka, krýndur meðkonungur föður síns, Loðvíks 7.
Fædd
- Teóbald 3., greifi af Champagne (d. 1201).
Dáin
- 19. júní - Erlingur skakki Ormsson, norskur höfðingi og faðir Magnúsar konungs.
- 17. september - Hildigerður frá Bingen, þýskur dulspekingur (f. 1098).