Fáni Panama
Útlit
Núverandi fáni Panama tók gildi 4. júní 1904. Maria Ossa de Amador, eiginkonu forsetans Manuel Amador Guerrero, er eignuð hönnunin.
Aðrar tillögur um fána
[breyta | breyta frumkóða]Frakkinn Philippe-Jean Bunau-Varilla teiknaði fyrsta fánann sem gerð var tillaga um. Þótti sú teikning minna nokkuð á fána Bandaríkjanna, með liggjandi borða og ferhyrning með tveimur gylltum sólum sem áttu að tákna þá tvo hluti sem sameinuðust við byggingu Panama-skurðsins.
Teikningu Bunau-Varilla var þó ekki ýkja vel tekið af leiðtoga landsins Manuel A. Guerrero, sem í staðinn stóð á bak við núverandi fána sem á að tákna einingu stjórnmálaflokka landsins.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Politikens flagbog – 300 nationale og internationale flag ISBN 87-567-6303-4