Houston
Útlit
Houston er stærsta borg Texas í Bandaríkjunum. Hún er fjórða stærsta borg Bandaríkjanna með yfir tvær milljónir íbúa. Borgin er þekkt fyrir olíuiðnað. Höfnin í Houston er sjötta stærsta höfn heims og stærsta útflutningshöfn Bandaríkjanna. Borgin heitir í höfuðið á Sam Houston sem varð tvisvar forseti lýðveldisins Texas um það leyti þegar borgin var sett á stofn upp úr 1836.
Íþróttir
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Houston.