Laptevhaf
Útlit
Laptevhaf er randhaf í Norður-Íshafi milli Tajmírskaga, Severnaja Semlja og Nýju-Síberíueyja. Í suðri er norðurströnd Síberíu. Í vestri tengist það Karahafi og í austri Austur-Síberíuhafi. Hafið er nefnt eftir rússnesku landkönnuðunum Dmítrí Laptev og Kariton Laptev en áður gekk það undir ýmsum nöfnum, meðal annars Nordenskjöldhaf eftir sænska landkönnuðinum Adolf Erik Nordenskjöld. Hafið er ísi lagt meirihluta ársins en ísa leysir í ágúst-september. Stærsta höfnin er bærinn Tiksi í Saka. Margar eyjar eru í hafinu.
-
Laptevhaf. Sólsetur.
-
Laptevhaf. Íshryggir
-
Svifnökkvinn Khivus-10 á Laptevhafi
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Laptevhafi.