Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ríkislaus þjóð er þjóðarbrot sem er ekki meirahlutahópur í neinu þjóðríki . Meðlimir í ríkilausri þjóð eru ekki endilega ríkisfangslausir —yfirleitt hafa þeir ríkisfang í ríkinu þar sem þeir búa. Stundum er þeim þó neitað ríkisfang í ríkinu þar sem þeir óska að búa, eða þar sem ættjörð þjóðarbrotsins er. Ríkislausar þjóðir eru ekki viðurkenndar á alþjóðlegum vettvangi, t.d. af íþróttasamtökum svo sem Alþjóðaknattspyrnusambandinu (FIFA) eða alþjóðasamtökum svo sem Sameinuðu þjóðunum .
Ríkislausum þjóðum er annaðhvort dreift yfir fjölda mismunandi ríkja, svo sem Kúrdar í Írak , Tyrklandi , Íran , Armeníu og Sýrlandi ), eða eru minnihlutahópur í ákveðnu héraði í stærra ríki, svo sem Úýgúrar í Xinjiang í Kína . Í sumum tilfellum höfðu ríkislausar þjóðar eigin ríki sem var hernumið eða gerðist hluti af öðru ríki, svo sem Tíbet , sem lýsti yfir sjálfstæði sínu árið 1913. Yfirlýsing var ekki viðurkennd og landið var svo hernumið af Kína árið 1951. Kínverska ríkisstjórnin heldur því fram að Tíbet sé ókljúfanlegur hluti af Kína, þar sem tíbeska ríkisstjórnin í útlegð heldur fram að Tíbet sé sjálfstætt ríki undir ólöglegu hernámi.
Sumar þjóðir sem einu sinni voru ríkislausar urðu svo að þjóðríkjum, svo sem Balkanskagaþjóðir eins og Króatar , Serbar , Bosníumenn , Slóvenar , Svartfellingar , Kosóvar og Makedóníumenn . Rómafólk er kannski undantekning við þessa reglu, því það á enga skýra ættjörð og lífir hirðingjalífi , og hefur ekki lýst yfir vilja til að stofna sitt eigið ríki.
Fyrst ekki öll ríki eru þjóðríki er fjöldi þjóða sem búa í fjölþjóðaríki án þess að þær séu teldar ríkislausar.
Þjóð
Fáni
Tungumál
Mannfjöldi
Ríki
Ættjörð
Andalúsíumenn
andalúsíska
9 milljónir
Spánn
Andalúsía
Assyrar
assyríska
3,3 milljónir
Sýrland , Írak , Íran , Tyrkland
Assyría
Ástralskir frumbyggjar
—
áströlsk frumbyggjamál
0,68 milljónir
Ástralía
Ástralía
Balúkar
balúkíska
10 milljónir
Pakistan , Íran , Afganistan
Balúkistan
Baskar
baskneska , franska , spænska
3,1 milljónir
Frakkland , Spánn
Baskaland
Borómenn
bodó
1,3 milljón
Indland
Bodóland
Bretónar
bretónska , franska , galló
3,1 milljónir
Frakkland
Bretanía
Færeyingar
færeyska
0,06 milljónir
Danmörk
Færeyjar
Galisíubúar
galisíska
2,8 milljónir
Spánn
Galisía
Hawaiibúar
hawaiíska
0,5 milljónir
Bandaríkin
Hawaii
Hmongmenn
hmong
4 milljónir
Laos , Kína , Víetnam , Taíland
—
Igbómenn
igbo
30 milljónir
Nígería
Bíafra
Inuítar
inuítamál
1 milljón
Bandaríkin , Danmörk , Kanada
Síbería , Alaska , Norður-Kanada , Grænland
Jorúba-menn
jorúba
35 milljónir
Nígería , Benín , Tógó
Jorúbaland
Kasmírar
—
kasmíríska
5,6 milljónir
Indland , Pakistan , Kína
Kasmír
Katalónar
katalónska , spænska , franska
8 milljónir
Spánn , Frakkland
Katalónía
Kornbretar
enska , kornbreska
0,5 milljónir
Bretland
Cornwall
Korsíkanar
korsíkanska , franska , ligúranska
0,3 milljónir
Frakkland
Korsíka
Kúkímenn
kúkímál
5 milljónir
Myanmar , Indland
Mísoram og Chin
Kúrdar
kúrdíska
40 milljónir
Írak , Tyrkland , Íran , Armenía , Sýrland
Kúrdistan
Lakotamenn
lakota , enska
0,1 milljónir
Bandaríkin
Lakota
Losímenn
losí
5,1 milljónir
Sambía
Barotseland
Mapuche-menn
mapudungun
1 milljón
Argentína , Síle
Araucanía
Maórar
maóríska
0,75 milljónur
Nýja-Sjáland
Nýja-Sjáland
Moravíar
moravíska
7 milljónir
Tékkland
Moravía
Nagamenn
tíbetóburmískar mallýskur
2 milljónir
Indland
Nagaland
Ogonímenn
ogoní
0,5 milljónir
Nígería
Ogoníland
Oksítanar
oksítanska , franska
16 milljónir
Frakkland
Oksítanía
Québec-búar
franska
6,2 milljónir
Kanada
Quebec
Riffíanar
riffíanska
6 milljónir
Marokkó , Spánn
Rif
Rjukjúanar
—
rjukjúanmál
1 milljón
Japan
Rjukjúan
Róhingjar
rohingya
3,6 milljónir
Myanmar
Rakhine
Samar
samísk mál , norska , sænska , finnska , rússneska
0,16 milljónir
Noregur , Svíþjóð , Finnland , Rússland
Lappland
Sardiníubúar
sardiníska , korsósardiníska , ítalska , katalónska , ligúranska
1,6 milljón
Ítalía
Sardinía
Shan-menn
shanmál
6 milljónir
Myanmar
Shan
Sirkasíumenn
sirkasíska
8 milljónir
Rússland
Sirkasía
Sindíar
sindí
60 milljónir
Pakistan , Indland
Sindúdess
Síkar
púnjabíska
27 milljónir
Indland , Pakistan
Kalistan
Skotar
enska , skoska , skosk gelíska
5,2 milljónir
Bretland
Skotland
Sorbar
sorbíska
0,6 – 0,7 milljónir
Þýskaland , Tékkland
Lúsatía
Tamílmenn
tamílska
77 milljónir
Srí Lanka , Indland
Tamilakam og Tamil Eelam
Tatarar
tataríska
7 milljónir
Rússland
Tatarstan
Téténar
téténíska
2 milljónir
Rússland
Téténía og Dagestan
Tíbetar
tíbeska
6 milljónir
Kína
Tíbet
Túaregar
túareg
1,2 milljón
Malí , Níger
Asawad
Úígúrar
úígúríska
9 milljónir
Kína
Kínverska Túrkestan
Vallónar
franska , vallónska , pikardíska , þýska
5,2 milljónir
Belgía
Vallónía
Wales-búar
velska , enska
3 milljónir
Bretland
Wales