William Lamb, vísigreifi af Melbourne
Vísigreifinn af Melbourne | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Í embætti 16. júlí 1834 – 14. nóvember 1834 | |
Þjóðhöfðingi | Vilhjálmur 4. |
Forveri | Jarlinn af Grey |
Eftirmaður | Hertoginn af Wellington |
Í embætti 18. ágúst 1835 – 30. ágúst 1841 | |
Þjóðhöfðingi | Vilhjálmur 4. Viktoría |
Forveri | Robert Peel |
Eftirmaður | Robert Peel |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 15. mars 1779 London, Englandi |
Látinn | 24. nóvember 1848 (69 ára) Brocket Hall, Hertfordshire, Englandi |
Stjórnmálaflokkur | Viggar |
Maki | Caroline Ponsonby (g. 1805; d. 1828) |
Börn | 2 |
Háskóli | Háskólinn í Glasgow Trinity-háskóli (Cambridge) |
Undirskrift |
William Lamb, annar vísigreifinn af Melbourne (15. mars 1779 – 24. nóvember 1848) var breskur stjórnmálamaður úr röðum Vigga sem var innanríkisráðherra (1830–1834) og forsætisráðherra Bretlands (1834 og 1835–1841). Hann er helst þekktur fyrir að hafa verið pólitískur lærifaðir Viktoríu drottningar þegar hún var 18 til 21 árs en Viktoría tók við krúnunni á ráðherratíð hans. Melbourne er yfirleitt ekki talinn með bestu forsætisráðherrum Bretlands þar sem engar meiriháttar innan- eða utanríkisdeilur komu upp í ráðherratíð hans og hann vann því engin meiriháttar afrek. Hann þótti þó góðhjartaður, heiðarlegur og laus við eigingirni.[1] Borgin Melbourne í Ástralíu er nefnd eftir honum.
Melbourne var tvisvar forsætisráðherra Bretlands. Fyrri ráðherratíð hans lauk árið 1834 þegar Vilhjálmur 4. Bretakonungur leysti hann frá störfum. Þetta var í síðasta sinn sem breskur einvaldur vék forsætisráðherra úr embætti. Hann var útnefndur í embættið á ný sex mánuðum síðar og gegndi því í sex ár.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ J. A. Cannon, „Melbourne, William Lamb, 2nd Viscount“, The Oxford Companion to British History (2009) bls. 634.
Fyrirrennari: Jarlinn af Grey |
|
Eftirmaður: Hertoginn af Wellington | |||
Fyrirrennari: Robert Peel |
|
Eftirmaður: Robert Peel |