Fara í innihald

Ofbeldi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Ofbeldi er „viljandi notkun krafts eða valds, annaðhvort hótuð eða raunveruleg, gegn sjálfum sér, öðrum einstaklingi, eða hópi eða samfélagi, sem leiðir til eða er líkleg til að leiða til meiðsla, dauða, sálfræðilegs skaða, vanþroskunar eða sviptingar“.[1] Velferðarráðuneyti Íslands skiptir ofbeldi í fjóra aðalflokka: líkamlegt ofbeldi, tilfinningalegt ofbeldi, vanrækslu og kynferðislegt ofbeldi.[2] Afleiðingar ofbeldis skipast í skammtíma- og langtímaafleiðingar en eru meðal annars minnkaður möguleiki til að gleðjast, hegðunarvandamál, lélegt sjálfstraust, erfiðleikar í að treysta öðrum og erfiðleikar í námi.[2]

Um allan heim deyja 1,6 milljón fórnarlömb ofbeldis á hverju ári: 50% vegna sjálfsmorðs, 35% vegna manndráps og 12% voru bein afleiðing stríðs eða annarra átaka. Áætlað er að 60,9 af hverjum 100.000 Afríkubúum deyja á hverju ári vegna ofbeldis.[3] Ofbeldi leiðir til tuga spítalainnlagna, hundraða heimsókna til slysadeilda og þúsunda funda með læknum.[4] Í mörgum tilfellum er hægt að koma í veg fyrir ofbeldi.

Heimildir

  1. Krug et al., "World report on violence and health", World Health Organization, 2002.
  2. 2,0 2,1 „Ofbeldi of afleiðingar þess“ (PDF). Sótt 7. júní 2014.
  3. Awake, 8. ágúst 2005 bls. 4-7
  4. „Global Burden of Disease“. World Health Organization. 2008. Sótt 2014.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.